Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 20. júní 2025 14:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: Dr. Football 
Máni Austmann riftir samningi sínum við Fjölni
Lengjudeildin
Hefur verið í stóru hlutverki hjá Fjölni frá komu sinni 2023.
Hefur verið í stóru hlutverki hjá Fjölni frá komu sinni 2023.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Máni Austmann Hilmarsson var ekki í leikmannahópi Fjölnis gegn Þrótti. Þetta var fjórði leikurinn í röð þar sem sóknarmaðurinn var ekki í hópnum. Hann hefur fengið samningi sínum við Fjölni rift. .

Gunnar Birgisson vakti athygli á þessu í Dr. Football í dag og Máni staðfesti tíðindin í samtali við Fótbolta.net. Máni skrifaði undir nýjan samning við Fjölni síðasta haust sem átti að gilda út 2026.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 -  4 Fjölnir

„Þetta er búið að eiga sér langan aðdranda og í síðust viku átti ég fund með Fjölni þar sem við fórum yfir málin."

„Ég tilkynnti þeim að ég hefði áhuga að kíkja í kringum mig í sumarglugganum eftir nýjum áskorunum. Niðurstaða fundarins var að það væri best að við myndum rifta samningnum og ég yrði frjáls ferða minna."

„Það er ekkert drama í kringum þetta né reiði á milli míns og Fjölnis. Ég óska Fjölni alls hins besta og veit að þeir gera það sama gagnvart mér."

„Ég hef átt frábæran tíma hjá Fjölni og sá leik þeirra í gær þar sem þeir unnu frábæran sigur gegn Þrótti, veit að liðið er á réttri leið og Gunni mun koma þeim á gott skrið í sumar,"
segir Máni.

Máni, sem er 27 ára, kom til Fjölnis fyrir tímabilið 2023, frá FH. Hann var næstmarkahæsti leikmaður liðsins 2023 og svo sá markahæsti á síðasta tímabili. Fjölnir vann í gær sinn fyrsta leik í Lengjudeildinni eftir mjög svo erfiða byrjun.
Athugasemdir
banner