Andy Cole, fyrrum framherji Manchester United og enska landsliðsins, heldur í vonina um að félagið fái Bryan Mbeumo frá Brentford í glugganum.
Man Utd keypti Matheus Cunha frá Wolves fyrir 62,5 milljónir punda fyrr í þessum mánuði.
Það er leikmaður sem Cole er virkilega spenntur fyrir og telur hann að Brasilíumaðurinn geti skapað mörg færi fyrir liðsfélaga sína á komandi leiktíð.
„Vonandi kemur hann inn með mikinn sköpunarmátt. Það hafa allir verið að tala um að Man Utd sé ekki að skapa nóg af færum og hann er akkúrat leikmaðurinn sem getur gert það.“
„Ég hlakka til þess að sjá hann og hann eflaust líka, sem er auðvitað það mikilvægasta í þessu. Hann getur átt gott undirbúningstímabil og tekið það með sér inn í tímabilið,“ sagði Cole.
Bryan Mbeumo, framherji Brentford, hefur þá verið orðaður við United síðustu vikur og eru taldar ágætis líkur á að United geti gengið frá kaupum á honum.
„Hann hefur verið stórkostlegur með Brentford. Að ná í öll þessi mark með Brentford á síðasta tímabili er stór plús. Það hefur reynst stórt vandamál hjá United að skora mörk, þannig ég vonast til að fá mörk frá honum ef hann kemur,“ sagði Cole.
Athugasemdir