Juventus berst við Napoli um Sancho - Slot hefur áhuga á Guehi - Man Utd horfir til Ítalíu
banner
   lau 21. júní 2025 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jón Þór: Hélt mér yrði treyst fyrir því að klára tímabilið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Hauksson var látinn taka pokann sinn hjá ÍA á dögunum eftir tap gegn Aftureldingu í síðustu umferð. Lárus Orri Sigurðsson var ráðinn eftirmaður hans í morgun.

Jón Þór var í spjalli í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag.

„Þetta er gríðarlega súrt og erfitt. En ég er bærilegur. Ég er fyrst og fremst svekktur yfir að hafa ekki náð að gera betur, ekki náð að fylgja eftir frábærum árum þar á undan,“ sagði Jón Þór.

Jón Þór tók við liðinu árið 2022 og féll það ár en vann sér sæti í Bestu deildinni strax árið eftir. Liðið var hársbreidd frá því að næla í Evrópusæti síðasta sumar en liðið náði aðeins í þrjú stig eftir tvískiptinguna.

„Þetta er eitthvað sem maður hafði miklar áhyggjur af, hvernig tímabilið endaði í fyrra. Sagan segir það, ekki bara á Íslandi, að þegar tímabil endar á þennan hátt er það oftar en ekki dregið inn í næsta tímabil.“

Tímasetningin kom Jóni Þór á óvart.

„Ég átti kannski frekar von á því eftir ÍBV-leikinn. Hann var virkilega slakur, baráttulaus og lélegur. Það áttu sér stað samtöl eftir þann leik þar sem ég var meðal annars spurður að því hvort ég treysti mér í þetta, hvort ég teldi mig vera manninn í þetta," sagði Jón Þór.

„Ég hélt að mér yrði treyst fyrir að klára tímabilið, styrkja liðið í glugganum og vinna í þeim hlutum sem þurfti að vinna í. En svona er fótboltinn og stjórnin tekur þessa ákvörðun.“

„Þetta er ekki það Skagalið og ekki þeir strákar sem ég þekki. Þetta er úr karakter við það sem við höfum staðið fyrir og sýndum til dæmis í fyrra. Ég held að hluti af þessu hafi verið að væntingarnar hafi verið vanstilltar.“

Hann gengur stoltur frá borði.

„Ég er stoltur af mínum verkum hjá ÍA. Það er búið að snúa ótrúlega mörgum hlutum við og félagið er á frábærum stað sem félag, þó staðan í deildinni sé ekki góð,“ sagði Jón Þór.
Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskiptin á Skaganum
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 11 7 2 2 22 - 13 +9 23
2.    Breiðablik 11 7 1 3 19 - 16 +3 22
3.    Vestri 11 6 1 4 13 - 7 +6 19
4.    Valur 11 5 3 3 24 - 16 +8 18
5.    Stjarnan 11 5 2 4 20 - 20 0 17
6.    Fram 11 5 0 6 18 - 17 +1 15
7.    Afturelding 11 4 2 5 12 - 14 -2 14
8.    ÍBV 11 4 2 5 12 - 17 -5 14
9.    KR 11 3 4 4 30 - 26 +4 13
10.    KA 11 3 3 5 10 - 18 -8 12
11.    FH 11 3 2 6 15 - 16 -1 11
12.    ÍA 11 3 0 8 13 - 28 -15 9
Athugasemdir
banner
banner