Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Ef ég bið hana um það á eftir að slökkva, loka og læsa þá gerir hún það"
Kvenaboltinn
Margrét Árna
Margrét Árna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Agnes Birta
Agnes Birta
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA vann Víking 4-1 í Bestu deild kvenna í gær en báðir leikir liðanna í sumar hafa endað með sigri Þór/KA með sömu markatölu.

Varnarmaðurinn Agnes Birta Stefánsdóttir kom Þór/KA yfir í leiknum en Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þór/KA, var virkilega ánægður með framlag hennar í leiknum.

Lestu um leikinn: Þór/KA 4 -  1 Víkingur R.

„Ég er hrikalega ánægður með Agnesi, hún er ein af þeim sem er á annarri löppinni. Hún er búin að vera harka í gegnum þessa törn og ég gæti ekki verið ánægðari með hana og hennar framlag. Hún átti 'shaky' móment í byrjun og hún svarar því eins og á að gera," sagði Jóhann Kristinn.

Agnes kom boltanum aftur í netið snemma í seinni hálfleik en markið var dæmt af.

„Það var eitt af þessum mómentum sem við þekkjum sem fótboltaaðdáendur að dómarinn tekur ákvörðun áður en spyrnan er tekin: 'Ég ætla að flauta'. Mér fannst hún eiga skilið eftir frábæra frammistöðu að fá annað mark."

Jóhann Kristinn tók Agnesi af velli eftir rúmlega klukkutíma leik og miðjumaðurinn Margrét Árnadóttir var komin í vörnina undir lokin.

„Magga er ein af þeim ef ég bið hana um það á eftir að slökkva, loka og læsa þegar síðasti er farinn heim þá gerir hún það. Hún er algjörlega mögnuð, það er frábært að eiga svona svissneskan vasahníf í liðinu sem gefst aldrei upp,"
Jóhann Kristinn: Formið á henni er ekkert eðlilegt
Athugasemdir
banner
banner