Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 20. júní 2025 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Amorim að verða óþolinmóður
Rúben Amorim.
Rúben Amorim.
Mynd: EPA
Rúben Amorim, stjóri Manchester United, er að verða óþolinmóður á því hversu hægt það gengur hjá Manchester United að fá inn leikmenn.

Amorim vonast til þess að félagið verði búið að ganga frá öllum leikmannakaupum áður en liðið fer í æfingaferð til Bandaríkjanna eftir mánuð.

Man Utd hefur til þessa fengið inn Matheus Cunha frá Wolves en engan annan þrátt fyrir mikið af sögusögnum.

United er að vinna í því að kaupa Bryan Mbeumo frá Brentford en það gengur hægt.

Amorim lítur á æfingaferðina til Bandaríkjanna sem frábæran stað til að koma nýjum leikmönnum inn í hópinn og þróa liðið áfram.

Portúgalski stjórinn, sem er að fara inn í sitt fyrsta heila tímabil með Man Utd, vill líka að félagið losi leikmenn fljótt. Þar á meðal eru Marcus Rashford, Jadon Sancho, Alejandro Garnacho og Antony en enginn af þeim er í plönum Amorim fyrir komandi leiktíð.
Athugasemdir