Vinstri bakvörðurinn Quilindschy Hartman, sem er á mála hjá Feyenoord í Hollandi, er að ganga í raðir Burnley fyrir rúmar 10 milljónir punda. VI greinir frá.
Hartman er 23 ára gamall Hollendingur sem hefur spilað með aðalliði Feyenoord frá 2022.
Hann varð hollenskur meistari undir stjórn Arne Slot árið 2023 og bikarmeistari á síðasta ári.
VI segir Hartman á leið til nýliða Burnley í ensku úrvalsdeildinni fyrir rúmar 10 milljónir punda. Félögin hafa náð samkomulagi og mun Hartman fara í læknisskoðun hjá enska félaginu á mánudag.
Miðillinn segir enn fremur Hartman vera að koma sér í umræðuna um sæti í hollenska landsliðið fyrir HM á næsta ári og að vinstri bakvarðarstaðan sé á lausu. Gott tímabil með Burnley gæti því fært honum sæti í landsliðinu.
Athugasemdir