Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 20. júní 2025 18:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bologna nýtti ákvæði í samningi Andra Fannars - Óvíst hvað gerist
Spilaði einn A-landsleik í fyrra; gegn Hondúras í janúar.
Spilaði einn A-landsleik í fyrra; gegn Hondúras í janúar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í stúkunni á Kópavogsvelli í sumar.
Í stúkunni á Kópavogsvelli í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samningur Andra Fannars Baldurssonar við Bologna hefði getað runnið út í lok þessa mánaðar en bæði hann og ítalska félagið voru með ákvæði um að geta framlengt samninginn um eitt ár til viðbótar.

Bologna hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net nýtt sér þann möguleika og er því Andri áfram samningsbundinn félaginu.

Það þýðir þó ekki endilega að Andri verði áfram hjá félaginu. Mörg félög hafa augastað á honum, en þurfa nú að kaupa hann lausan ef þau vilja hans krafta.

Andri hefur verið lánaður frá félaginu síðustu ár, verið hjá FCK, NEC Nijmegen og síðast Elfsborg. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net mun Andri ekki fara aftur á lán. Hann verður annað hvort seldur eða verður hluti af leikmannahópi ítalska félagsins, og þá skrifa undir lengri samning við Bologna. Bologna varð bikarmeistari í vetur og endaði í 9. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar.

Andri er 23 ára miðjumaður sem fór til Bologna árið 2019, fyrst á láni en var svo keyptur. Árið 2020 þreytti hann frumraun sína með Bologna en náði ekki að koma sér í stórt hlutverk hjá félaginu.

Hann er sem stendur að vinna hart að því að koma sér í gott form eftir erfið meiðsli. Hann á að baki tíu A-landsleiki og 56 leiki fyrir yngri landsliðin.
Athugasemdir
banner
banner