Napoli reynir aftur við Garnacho - Arsenal ekki að ná að semja við Sporting um Gyökeres - Kudus í læknisskoðun hjá Spurs
Einar Guðna þurfti ekki að hugsa málið - „Algjört draumastarf"
Halli: Er ekkert í þessu til að hefna fyrir eitt né neitt
Halli Hróðmars: Orðið ansi þungt leik eftir leik
Úlfur Ágúst: Ég reyndi og sem betur fer fór hann inn
Jökull: Við vorum líklegri og sköpuðum betri færi
Heimir Guðjóns: Vítið sem Stjarnan fékk var rangur dómur
„Ekki búin að því og ég veit ekki hvort maður muni gera það"
Svaf ekki mikið - „Þurfum að nota þetta sem spark í rassinn"
Sár, svekkt og leið - „Ég er ekki sú ferskasta núna"
„Þetta er ekki upplifun sem ég hef fengið áður"
Steini: Ég er með samning áfram
Guðrún: Mikið af knúsum og ekki mikið af orðum
Cecilía: Leiðinlegt að hafa ekki gert meira fyrir þau
Karólína Lea: Það er langt síðan ég hef grenjað svona
Magnað viðtal við Glódísi - „Mun aldrei fyrirgefa mér það"
Ingibjörg meyr: Við ætlum að fokking vinna Noreg
Dagný: Ég hefði viljað ná að brjóta
Haddi: Ég skil ekki af hverju allir efast um Viðar
Ívar Örn: Það fer okkur mjög vel að spila hér í Laugardalnum
Grímsi: Vonandi er stíflan brostin sem ég er búinn að vera að glíma við
   fim 19. júní 2025 23:25
Kjartan Leifur Sigurðsson
Vuk: Ætlum að vinna bikarinn og komast í Evrópu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Geggjuð tilfinning. Þetta var mjög erfitt enda er Afturelding með mjög gott lið. Þetta var 50/50 leikur sem datt okkar meginn. segir Vuk Óskar Dimitrijevic, leikmaður Fram, eftir 1-0 sigur sinna manna gegn Aftureldingu í Mjólkurbikarnum.

Lestu um leikinn: Afturelding 0 -  1 Fram

Vuk lagði upp sigurmarkið með frábærri fyrirgjöf beint á kollinn á Frey Sigurðssyni.

„Ég var allt í lagi bara í dag. Mér fannst ég ekki vera frábær en ég gerði vel í markinu og það var flott."

Framarar gerðu vel í því að gefa nánast engin færi á sér eftir að hafa komist yfir.

„Liðsframmistaðan var góð. Rúnar talaði um að við þyrftum að berjast fyrir hvorn annan, fyrir liðið, sæti okkar í liðinu og fyrir sjálfan okkur. Við sýndum það í dag"

Fram er komið í undanúrslit í þar sem mótherjinn verður Vestri.

Við ætlum að fara alla leið. Vinna bikarinn og komast í Evrópu."
Athugasemdir
banner