Bill Foley, eigandi Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni, er búinn að bæta nýju fótboltafélagi við eignasafnið sitt.
Hann var að kaupa portúgalska efstudeildarfélagið Moreirense sem endaði í tíunda sæti portúgölsku deildarinnar á síðustu leiktíð.
Foley er þegar meirihlutaeigandi í nýsjálenska félaginu Auckland FC, sem keppir á HM félagsliða þessa dagana, auk þess að eiga stóran minnihluta í FC Lorient í Frakklandi og Hibernian í Skotlandi.
Foley er mikill íþróttaaðdáandi og er einnig eigandi Vegas Golden Knights, íshokkíliðs frá Las Vegas sem tekur þátt í NHL deildinni heimsfrægu.
Athugasemdir