Enski miðjumaðurinn Jobe Bellingham mun feta í fótspor bróður síns á komandi tímabili, en hann gekk í raðir Borussia Dortmund frá Sunderland.
Jude, bróðir Jobe, kom til Dortmund frá Birmingham árið 2020 og spilaði með liðinu þrjú tímabil áður en hann var seldur til Real Madrid.
Jobe er 19 ára gamall og var valinn besti ungi leikmaður ensku B-deildarinnar er Sunderland vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Hann var með marga kosti í stöðunni eftir tímabilið. Hann gat verið áfram hjá Sunderland og þá voru fleiri lið á eftir honum eins og Eintracht Frankfurt, en Jobe segist hafa upplifað kvíða og ótta við að velja næsta skref ferilsins.
Segir hann þá að hann hafi hikað við að fara til Dortmund vegna bróður síns.
„Mér er alveg sama hvernig þetta lítur út en það getur verið að sumum finnist þetta gagnstætt. Ég var kannski svolítið hlutdrægur í garð Dortmund í mjög langan tíma, bæði með kvíða og ótta því maður vill vera eigin herra, en það ætti að ekki að koma í veg fyrir að ég taki rétta ákvörðun.“
„Þetta snerist um að velja réttu leiðina en ekki endilega einhverja aðra leið. Mér finnst leiðin mín ekki hafa verið sú sama og hjá Jude, en af hverju ætti ég ekki að fara til Dortmund ef ég tel það vera réttu leiðina? Margir efnilegir leikmenn hafa farið þangað, ekki bara ég og bróðir minn. Það væru stór mistök að skrifa undir hjá öðru félagi bara af því Jude spilaði þar og síðan myndi það ekki ganga vel. Þetta er áhætta hjá báðum aðilum og kostir og gallar við öll félög.“
„Ég hafði dágóðan tíma til að hugsa málið og bæði ég og stuðningsmennirnir voru óþolinmóðir, en hausinn og hjartað sagði mér að velja Dortmund og þegar upp er staðið er það sem ræður ferðinni og því valdi ég Dortmund,“ sagði Jobe við DAZN.
Athugasemdir