Það bendir flest til þess að Liverpool sé að selja miðvörðinn Jarell Quansah til Bayer Leverkusen.
Quansah er 22 ára gamall en sér ekki greiða leið inn í byrjunarliðið hjá Liverpool. Hann elskar uppeldisfélagið sitt en vill fá meiri spiltíma eftir að hafa aðeins komið við sögu í 25 leikjum á nýliðnu tímabili.
Quansah er 22 ára gamall en sér ekki greiða leið inn í byrjunarliðið hjá Liverpool. Hann elskar uppeldisfélagið sitt en vill fá meiri spiltíma eftir að hafa aðeins komið við sögu í 25 leikjum á nýliðnu tímabili.
Talið er að Leverkusen muni borga um 40 milljónir evra fyrir Quansah en félögin eru að færast nær samkomulagi.
Sky Sports segir að Liverpool sé að leita að nýjum miðverði þar sem Quansah er líklega að fara. Englandsmeistararnir hafi áhuga á að fá ungan miðvörð sem geti verið virkilega góður í framtíðinni.
Liverpool hafði áhuga á Leny Yoro síðasta sumar áður en hann fór til Manchester United og Dean Huijsen var á lista félagsins í sumar áður en hann fór til Real Madrid.
Núna er Marc Guehi, varnarmaður Crystal Palace, sá sem er mest orðaður við félagið. Guehi á eitt ár eftir af samningi sínum og því er líklegt að hann fari frá Palace í sumar en það verður ekki auðvelt að kaupa hann samt sem áður. Palace vill fá stóra upphæð fyrir hann og Guehi vill fá loforð um byrjunarliðsfótbolta.
Guehi hefur einnig verið orðaður við Arsenal og Newcastle upp á síðkastið.
Núna er spurning hvað gerist hjá Liverpool en það er ekkert stress í gangi hjá félaginu þó Quansah sé líklega að fara. Það hefur verið nóg að gera á markaðnum hjá Liverpool í sumar og er erfitt að sjá annað en að liðið verði sterkara á komandi tímabili en það var á síðustu leiktíð.
Athugasemdir