Skagamenn tilkynntu ráðningu á nýjum þjálfara í dag en Lárus Orri Sigurðsson er kominn aftur heim á Akranes.
Jón Þór Hauksson hætti með ÍA fyrir nokkrum dögum eftir slaka byrjun á tímabilinu og var Lárus Orri kynntur hjá félaginu í dag.
Lárus Orri er uppalinn á Akranesi og spilaði með yngri flokkum ÍA áður en flutti á unglingsaldri á Akureyri. Þar spilaði hann með Þórsurum til 1994 áður en hann var seldur til Stoke City.
Fyrrum varnarmaðurinn lék í tíu ár með Stoke og WBA, í ensku B-deildinni og úrvalsdeildinni.
Lárus lauk ferli sínum með Skagamönnum árið 2010 og hélt út í þjálfun. Hann hefur þjálfað Þór í tvígang og KS/Leiftur einu sinni, en fær nú tækifærið til að stýra öðru uppeldisfélagi sínu.
Skagamenn birtu myndband á Instagram þar sem Lárus Orri var kynntur og má þar sjá gamlar myndir af honum í ÍA-treyjunni og nokkrar úr atvinnumennsku.
Athugasemdir