Nicolas Jackson, leikmaður Chelsea, setti liðsfélaga sína í erfiða stöðu þegar liðið tapaði gegn Flamengo á HM félagsliða í kvöld.
Jackson kom inn á 64. mínútu en fékk rautt spjald aðeins fjórum mínútum síðar. Rétt áður komst Flamengo í 2-1 og vann að lokum 3-1.
Jackson kom inn á 64. mínútu en fékk rautt spjald aðeins fjórum mínútum síðar. Rétt áður komst Flamengo í 2-1 og vann að lokum 3-1.
„Ótrúlegt, svo heimskulegt. Ég veit ekki hvað er að fara í gegnum hausinn á honum. Liðið þarf á þér að halda og hann gerir þetta," sagði John Obi Mikel, fyrrum leikmaður Chelsea, í útsendingu DAZN á leiknum.
Jackson, sem fagnar 24 ára afmælinu sínu í dag, skrifaði skilaboð á Instagram eftir leikinn og bað liðsfélaga sína og stuðningsmenn afsökunar.
„Ég vil biðja félagið, starfsfólkið, liðsfélagana og alla stuðningsmennina afsökunar. Ég brást ykkur, annað rautt spjald og í sannleika sagt er ég mjög reiður út í sjálfan mig," skrifaði Jackson.
„Ég legg hart að mér á hverjum degi til að hjálpa liðinu og setja það ekki í þessa stöðu. Ég skil enn ekki alveg hvernig þetta gerðist en eitt er ljóst: Þetta var ekki viljandi. Engar afsakanir og ég ber fulla ábyrgð."
Sjáðu rauða spjaldið hér
Athugasemdir