Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 20. júní 2025 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Frank: Ange verður goðsögn hérna að eilífu
Mynd: EPA
Thomas Frank svaraði spurningum í sínu fyrsta viðtali eftir félagaskiptin til Tottenham.

Frank var meðal annars spurður út í Ange Postecoglou sem var rekinn frá Tottenham þrátt fyrir að hafa sigrað úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Manchester United.

„Að mínu mati afrekaði Ange eitthvað sérstakt hérna og verður goðsögn hjá Tottenham að eilífu," sagði Frank í sínu fyrsta viðtali. „Það er mikilvægt að muna að maður stendur á öxlum síðustu manna sem stýrðu félaginu. Ég ætla að halda áfram að byggja á þeim grunni sem Ange og starfsteymið hans skapaði hérna. Ég mun gera mitt besta til að halda áfram að bæta félagið.

„Ég vil að stuðningsmenn upplifi fleiri stundir eins og þegar þeir unnu Evrópudeildina. Vonandi getum við skapað fleiri svoleiðis minningar, það er draumurinn."


Frank tekur við Tottenham eftir að hafa staðið sig frábærlega við stjórnvölinn hjá Brentford síðustu sjö árin. Hann hefur verið orðaður við stór störf hjá Manchester United og Aston Villa í fortíðinni og fær nú tækifærið hjá Tottenham.

„Ég er mjög spenntur fyrir því að þjálfa þetta fótboltalið, það eru frábærir fótboltamenn hérna. Þetta er risastórt félag sem getur keppt um stærstu titlana, þannig að já ég er svakalega spenntur."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 38 25 9 4 86 41 +45 84
2 Arsenal 38 20 14 4 69 34 +35 74
3 Man City 38 21 8 9 72 44 +28 71
4 Chelsea 38 20 9 9 64 43 +21 69
5 Newcastle 38 20 6 12 68 47 +21 66
6 Aston Villa 38 19 9 10 58 51 +7 66
7 Nott. Forest 38 19 8 11 58 46 +12 65
8 Brighton 38 16 13 9 66 59 +7 61
9 Bournemouth 38 15 11 12 58 46 +12 56
10 Brentford 38 16 8 14 66 57 +9 56
11 Fulham 38 15 9 14 54 54 0 54
12 Crystal Palace 38 13 14 11 51 51 0 53
13 Everton 38 11 15 12 42 44 -2 48
14 West Ham 38 11 10 17 46 62 -16 43
15 Man Utd 38 11 9 18 44 54 -10 42
16 Wolves 38 12 6 20 54 69 -15 42
17 Tottenham 38 11 5 22 64 65 -1 38
18 Leicester 38 6 7 25 33 80 -47 25
19 Ipswich Town 38 4 10 24 36 82 -46 22
20 Southampton 38 2 6 30 26 86 -60 12
Athugasemdir
banner