Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 23:20
Elvar Geir Magnússon
Mbappe útskrifaður af sjúkrahúsinu
Mynd: EPA
Franski sóknarmaðurinn Kylian Mbappe, leikmaður Real Madrid, hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi og er mættur aftur í herbúðir spænska stórliðsins sem tekur þátt í HM félagsliða í Bandaríkjunum.

Hann var í meðhöndlun vegna magabólgu en hann missti af leik Real Madrid gegn Al-Hilal sem endaði með 1-1 jafntefli.

Í tilkynningu frá Real Madrid segir að Mbappe verði áfram undir eftirliti lækna. Næsti leikur liðsins er gegn Pachuca frá Mexíkó á sunnudaginn. Ef Mbappe verður ekki orðinn klár fyrir þann leik er enn mögulegt að hann geti spilað gegn Salzburg í lokaumferð riðlakeppninnar þann 26. júní.

Magabólga er sýking í meltingarvegi sem veldur uppköstum eða niðurgangi.
Athugasemdir
banner
banner
banner