Sky á Ítalíu greinir frá því að Fiorentina sé að reyna að krækja í Hamed Traoré leikmann Bournemouth.
Traoré er 25 ára gamall sóknartengiliður sem á þrjú ár eftir af samningi við Bournemouth.
Enska úrvalsdeildarfélagið fékk hann úr röðum Sassuolo á Ítalíu fyrir tveimur og hálfu ári síðan en Traoré fann aldrei taktinn með Bournemouth, þrátt fyrir að sýna frábærar rispur inn á milli.
Hann er ekki í myndinni hjá Andoni Iraola þjálfara Bournemouth og er því til sölu. Traoré skoraði 10 mörk og gaf 2 stoðsendingar á láni hjá Auxerre í frönsku deildinni á síðustu leiktíð.
Hann á 10 landsleiki að baki fyrir Fílabeinsströndina og var lánaður til Napoli í janúar í fyrra. Hann hefur aðeins komið við sögu í 13 keppnisleikjum með Bournemouth.
Athugasemdir