Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 23:59
Elvar Geir Magnússon
HM félagsliða: Atletico svaraði fyrir skellinn með sigri
Pablo Barrios fagnar.
Pablo Barrios fagnar.
Mynd: EPA
Seattle Sounders 1 - 3 Atletico Madrid
0-1 Pablo Barrios ('11 )
0-2 Axel Witsel ('47 )
1-2 Albert Rusnak ('51 )
1-3 Pablo Barrios ('56 )

Önnur umferð í B-riðli HM félagsliða hófst með leik Seattle Sounders og Atletico Madrid. Spænska stórliðið vann á endanum sannfærandi sigur.

Atletico hafði tapað 4-0 gegn PSG í fyrstu umferðinni en svaraði fyrir það tap með 3-1 sigri þar sem hinn 22 ára gamli Pablo Barrios skoraði tvívegis.

Seattle hefur tapað báðum leikjum sínum í riðlinum en PSG og Botafogo mætast í hinum leik riðilsins eftir um klukkustund, klukkan 1 í nótt.
Athugasemdir
banner