Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 20. júní 2025 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Komið 'here we go' á Kerkez til Liverpool
Milos Kerkez.
Milos Kerkez.
Mynd: EPA
Það er allt klappað og klárt með Milos Kerkez til Liverpool. Fabrizio Romano hefur sett sitt víðfræga 'here we go' á þessu félagaskipti og hinn mjög svo áreiðanlegi David Ornstein segir samkomulag í höfn.

Liverpool mun borga Bournemouth 40 milljónir punda fyrir Kerkez og skrifar hann undir langtímasamning við Englandsmeistarana.

Kerkez mun á næstu dögum fara í læknisskoðun en þessi félagaskipti hafa legið lengi í loftinu.

Hinn 21 árs gamli Kerkez átti mjög gott tímabil hjá Bournemouth og var einn af bestu vinstri bakvörðum ensku úrvalsdeildarinnar.

Þessi félagaskipti setja spurningamerki við framtíð Andy Robertson hjá Liverpool en hann hefur verið orðaður við Atletico Madrid.

Liverpool var þegar búið að landa Jeremie Frimpong frá Bayer Leverkusen í sumar og er Florian Wirtz einnig að koma frá Leverkusen.
Athugasemdir
banner
banner
banner