Paul Pogba er að öllum líkindum á leið til Mónakó en hann er með samningstilboð á borðinu frá franska liðinu.
Það er hins vegar ekki alveg víst þar sem sádi-arabíska félagið Al-Ittihad hefur sýnt honum áhuga samkvæmt franska miðlinum Foot Mercato.
Það er hins vegar ekki alveg víst þar sem sádi-arabíska félagið Al-Ittihad hefur sýnt honum áhuga samkvæmt franska miðlinum Foot Mercato.
Pogba er fyrrum leikmaður Man Utd og Juventus en hann var upphaflega dæmdur í fjögurra ára bann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi en það var stytt niður í 18 mánuði.
Hann hefur ekki spilað fótbolta síðan í september 2023. Fari hann til Al-Ittihad mun hann hitta fyrrum landsliðsfélaga sína hjá Frakklandi, Karim Benzema og N'Golo Kante.
Athugasemdir