Juventus berst við Napoli um Sancho - Slot hefur áhuga á Guehi - Man Utd horfir til Ítalíu
   lau 21. júní 2025 11:33
Brynjar Ingi Erluson
OnlyFans-stjarna neitar að hafa hitt Yamal - „Aldrei átt í sambandi við ólögráða einstakling“
Lamine Yamal
Lamine Yamal
Mynd: EPA
Mynd: EPA
OnlyFans-stjarnan Claudia Bavel hefur séð sig tilneydda til þess að svara fyrir um meint samband hennar og spænska landsliðsmannsins Lamine Yamal.

Á dögunum var greint frá því í spænskum miðlum að Yamal og Bavel hafi talað saman á Instagram og að leikmaðurinn hafi sent henni þúsundir skilaboða.

Yamal sagðist aldrei hafa hitt Bavel og allt þetta væri á sandi byggt og það hafi verið hann sem hafi hafnað henni.

Þessar fréttir koma aðeins nokkrum dögum eftir að Yamal var myndaður í fríi með Fati Vazquez, 29 ára samfélagsmiðlastjörnu, en það skal tekið fram að Yamal er 17 ára gamall og því ólögráða.

Bavel, sem hefur það að atvinnu að framleiða klámfengið efni á OnlyFans, vildi leiðrétta þann misskilning að Yamal hafi hafnað henni.

„Ég hef valið að tala ekki opinberlega um þetta málefni á þessu ári. Hins vegar tel ég það viðeigandi að deila minni útgáfu af skýrleika og virðingu þar sem Lamine Yamal nefndi meint samband okkar á TardeAR. Hann segist búa með móður sinni, en raunveruleikinn er sá að hann býr einn. Hann segist hafa hafnað mér þegar það var hann sem hafði samband við mig og heimtaði að við hittumst. Hann neitar því að hafa hitt mig þó leiðir okkar hafa oft ratað saman á mörgum samfélagslegum viðburðum. Ég óska vinsamlega eftir því að öll þessi óviðeigandi og ærumeiðandi skilaboð hætti.“

„Ég hef aldrei átt í sambandi við ólögráða einstakling, aldrei skipulagt hitting og það var aldrei neitt plan sem kom að frægð eða peningum. Það eina sem við getum verið sammála um er að það varð aldrei neinn hittingur og það gerðist ekkert okkar á milli, en bak við þessar fyrirsagnir og skoðanir almennings er fólk og af virðingu bið ég um skilning og aðhald,“
sagði Bavel á Instagram.

Eins og hefur komið fram er Yamal í fríi og gengið á ýmsu þar, en hann var einnig myndaður á dögunum með brasilísku stjörnunni Neymar á sundlaugarbakka.

Stuðningsmenn Barcelona hafa verulegar áhyggjur af Yamal og segja hann fara vitlausa leið. Segja þeir Neymar ekki vera besta fyrirmyndin fyrir Spánverjann, enda þekktur fyrir partístand og eru margir hræddir um að Yamal muni sóa hæfileikum sínum ef hann heldur áfram að fara þessa braut.
Athugasemdir
banner