Búið er að tilkynna hvaða sex leikmenn koma til greina sem leikmaður ársins hjá leikmannasamtökunum á Englandi.
Englandsmeistarar Liverpool eiga tvo leikmenn sem koma til greina; Mohamed Salah og Alexis Mac Allister. Sá fyrrnefndi hefur nú þegar verið valinn leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni.
Englandsmeistarar Liverpool eiga tvo leikmenn sem koma til greina; Mohamed Salah og Alexis Mac Allister. Sá fyrrnefndi hefur nú þegar verið valinn leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni.
Það vekur athygli að Bruno Fernandes er á listanum þrátt fyrir að Manchester United hafi endað í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Hann var langbesti leikmaður United á tímabilinu.
Alexander Isak úr Newcastle, Cole Palmer úr Chelsea og Declan Rice úr Arsenal eru einnig tilnefndir.
Sigurvegari verðlaunanna verður opinberaður 19. ágúst á verðlaunahátíð í Manchester.
Athugasemdir