Rangers og Bournemouth hafa náð samkomulagi um varnarmanninn Max Aarons sem mun ganga til liðs við Rangers í sumar.
Hann mun fara á láni til skoska liðsins og ekkert kaupákvæði er í samningnum.
Hann mun fara á láni til skoska liðsins og ekkert kaupákvæði er í samningnum.
Aarons gekk til liðs við Bournemouth frá Norwich sumarið 2023. Hann spilaði 23 leiki með liðinu tímabilið 2023/24 en spilaði aðeins fjóra leiki á síðustu leiktíð áður en hann var lánaður til Valencia í janúar.
Hann lék aðeins fimm leiki fyrir spænska liðið.
Athugasemdir