Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 20. júní 2025 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Skiptir til Mexíkó þrátt fyrir gott hlutverk hjá Atlético
Mynd: EPA
Mexíkóska stórveldið Tigres UANL er að krækja í gríðarlega öflugan liðsstyrk úr röðum Atlético Madrid. Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskiptin.

Hinn þrítugi Ángel Correa er á leið til félagsins frá Atlético Madrid en hann hefur verið í flottu hlutverki þar á undanförnum árum.

Correa hefur verið leikmaður Atlético Madrid í ellefu ár og skorað í heildina 88 mörk í 467 leikjum. Hann er með 28 landsleiki að baki fyrir Argentínu og var í leikmannahópinum sem vann Copa América 2021 og HM 2022.

Correa er búinn að samþykkja fimm ára samning við Tigres, en hann er aðeins með eitt ár eftir af samningi sínum við Atlético.

Correa leikur sem kantmaður og framherji og kom að 13 mörkum í 46 leikjum með Atlético á nýliðnu tímabili.
Athugasemdir