Gareth Bale fer fyrir fjárfestingahópi frá Bandaríkjunum sem stefnir á að kaupa Cardiff City. The Athletic greinir frá þessu.
Hópurinn sendi Vincent Tan, eiganda Cardiff, bréf sem lýsti yfir löngun þeirra til að kaupa félagið og innihélt fjárhagsupplýsingar. Því var hafnað en Bale og félagar hafa ekki gefist upp.
Hópurinn sendi Vincent Tan, eiganda Cardiff, bréf sem lýsti yfir löngun þeirra til að kaupa félagið og innihélt fjárhagsupplýsingar. Því var hafnað en Bale og félagar hafa ekki gefist upp.
Bale er fæddur í Cardiff í Wales en hóf fótboltaferilinn hjá Southampton á Englandi. Hann lagði skóna á hilluna árið 2023 eftir hálft ár hjá Los Angeles Galaxy í Bandaríkjunum en hann lék einnig með Tottenham og Real Madrid.
The Athletic greinir einnig frá því að sögusagnir um að hópurinn ætli sér að kaupa Plymouth séu rangar.
Athugasemdir