„Það eru tvær æfingar búnar, tveir góðir fundir og holningin á liðinu er góð," segir Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins.
Á fimmtudag leikur liðið sinn fyrsta leik í undankeppni HM þegar Sviss mætir á Laugardalsvöll.
Á fimmtudag leikur liðið sinn fyrsta leik í undankeppni HM þegar Sviss mætir á Laugardalsvöll.
„Okkar möguleikar eru ágætir. Ég held að þetta verði 50/50 leikur. Þarna eru tvö góð lið að mætast og við þurfum að halda í okkar skipulag og hafa trú á eigin getu. Þá vinnum við."
Freyr vonast eftir ágætis mætingu á fimmtudaginn.
„Það er ekkert annað í gangi held ég. 18:30 í flóðljósum og kveðjuleikurinn hennar Kötu," segir Freyr en Katrín Jónsdóttir mun leika sinn síðasta landsleik á fimmtudag.
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.























