PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 18:01
Sverrir Örn Einarsson
Besta deild kvenna: Dramatík á Akureyri - Valur sigraði nýliðana
Dramatíkst jafntefli
Kvenaboltinn
Ísabella Sara tryggði Val sigur á Grindavík/Njarðvík
Ísabella Sara tryggði Val sigur á Grindavík/Njarðvík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Besta deild kvenna er farin að rúlla og lauk fyrst umferð deildarinnar nú síðdegis með tveimur leikjum.

Valur 2 - 1 Grindavík/Njarðvík
1-0 Arnfríður Auður Arnarsdóttir ('15 )
1-1 Sophia Faith Romine ('21 )
2-1 Ísabella Sara Tryggvadóttir ('66 )

Á Hlíðarenda tóku heimakonur í Val á móti nýliðum Grindavík/Njarðvík. Eftir stundarfjórðungs leik voru það Valskonur sem tóku forystuna þegar að Lauren Kellett í marki Gri/Nja gerði sig seka um slæm mistök og setti boltann beint á Arnfríði Auði Arnarsdóttur sem þakkaði pent fyrir sig og skoraði.

Forysta Vals entist þó ekki lengi því Sophia Faith Romine jafnaði leikinn aðeins sex mínútum síðar er hún skilaði góðri fyrirgjöf Ásu Bjargar Einarsdóttur í netið.

Grindavík tók nokkuð yfir leikinn í síðari hálfleik en það voru þó Valskonur sem settu boltann í netið þegar Ísabella Sara Tryggvadóttir hafði betur í baráttu við varnarmenn og skoraði gegn Kellet í marki gestanna.

Í uppbótartíma fékk Maci Nicole Teater að líta beint rautt spjald í lið Gri/Nja fyrir að toga í hár Kimberley Dóru Hjálmarsdóttur. Lokatölur 2-1 Val í vil og heimakonur byrja á sterkum sigri.


Þór/KA 1 - 1 FH
0-1 Thelma Lóa Hermannsdóttir ('9 )
1-1 Erin Flurey (‘90)

FH hélt norður í land og mætti þar Þór/KA á VÍS vellinum. Eftir rétt tæplega 10 mínútna leik kom Thelma Lóa Hermannsdóttir gestunum úr Hafnarfirði yfir er hún fékk boltann í teig Þór/KA og skoraði með góðu skoti.

Jafnræði var með liðunum og fengu bæði lið færi til að bæta við mörkum í leikinn en það var ekki fyrr en í uppbótartíma sem boltinn endaði í netinu á ný.

Þar var á ferðinni Erin Flurey sem tryggði Þór/KA dramatískt jafntefli með marki eftir Katla María Þórðardóttir varnarmaður FH tapaði boltanum á hættulegum stað.
Slapp
banner
banner
banner