PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Davíð Smári: Kom mér verulega á óvart
Meðvitaður um áhuga Vals - „Þetta er bara á milli félaganna"
Damir: Vonandi springur hann út hjá okkur
Ray virðir stigið: Vona að við getum bætt við einum reynslumeiri manni
Badu svekktur: Væri gott að fá góðan liðsstyrk
Anton Ingi: Töpuðum í raun fyrir sjálfum okkur
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
Skoraði í sínum 100. leik - „Við hefðum átt að vera löngu búnar að klára þetta“
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
Óskar Smári: Þessi leikur frábært sýnisdæmi fyrir þessa deild
„Mjög jákvætt að fá Bryndísi inn“
„Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana“
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
   lau 25. apríl 2026 16:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Badu svekktur: Væri gott að fá góðan liðsstyrk
Lengjudeildin
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
„Vonsvikinn, við vildum vinna í dag og við gátum það ekki og því er ég augljóslega vonsvikinn," sagði Daniel Badu, þjálfari Vestra, eftir jafntefli við Grindavík á heimavelli í fyrstu umferð Lengudeildarinnar.

Vestri spilaði betur í seinni hálfleik en þeim fyrri og Badu er svekktur að hans menn nýttu ekki færin sín. Næsti leikur verður gegn Fylki á útivelli eftir viku.

Lestu um leikinn: Vestri 1 -  1 Grindavík

„Ef við gerum góðu hlutina sem við gerðum í dag og ekki þá slæmu, þá verð ég glaður. Ég vil skoða það sem við gerðum ekki nógu vel, höfum viku til að æfa og vonandi spilum við betur í næsta leik."

„Standið okkar verður bara betra, það styttist í Gumma, Fatai er auðvitað enn frá en hópurinn lítur betur út núna en fyrir nokkrum vikum."

„Ég er ánægður með hópinn, svo ef við fáum engan inn fyrir gluggalok þá er það ekki vandamál, en ef við getum fengið inn góðan liðsstyrk þá væri það gott,"
sagði Badu um mögulega styrkingu fyrir gluggalok.

Hægt er að sjá og hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum efst.
Slapp
banner
banner
banner