32-liða úrslit Fótbolti.net bikarsins héldu áfram í kvöld en KFG og Víðir, sem mættust í úrslitum fyrir tveimur árum, mættust á Samsung-vellinum og náðu Garðbæingar fram hefndum með því að vinna góðan 4-2 sigur. Ingólfur Sigurðsson skoraði þá þrennu er Víkingur Ó. pakkaði Elliða saman, 6-1, á Ólafsvíkurvelli.
Garðbæingar byrjuðu betur gegn Víði en fengu óvænt mark í andlitið á 13. mínútu er David Toro Jimenez rændi boltanum af leikmanni KFG og setti boltann síðan framhjá markverðinum og í netið.
Nokkrum mínútum síðar er Helgi Snær Agnarsson átti skot en bjargað var á línu. Leikmenn KFG kölluðu eftir hendi, víti og jafnvel marki, en fengu ekkert.
KFG tókst að snúa leiknum sér í hag á tveimur mínútum. Fyrst skoraði Bóas Heimisson með skalla eftir hornspyrnu á 28. mínútu og tveimur mínútum síðar átti Kristján Ólafsson algert draumaskot fyrir utan teig og í samskeytin. Svakalegt mark.
Adrían Baarregaard Valencia var grátlega nálægt því að skora þriðja markið á 38. mínútu en Aron Örn Hákonarson bjargaði á marklínu. Í annað sinn í leiknum sem Víðismenn bjarga á línu.
KFG hélt áfram að pressa og náði inn þriðja markinu rétt fyrir hálfleik er Jón Arnar Barðdal skoraði með þéttingsföstu skoti í bláhornið.
Trúin var minni hjá Víðismönnum í þeim síðari og gat KFG gert út um leikinn, en brenndi af nokkrum færum. Víðismenn fengu von er Kristófer Snær Jóhannsson slapp í gegn og skoraði laglegt mark.
Í kjölfarið lögðu þeir allt í sölurnar en það varð þeim að falli því Kristján Ólafs bætti við öðru marki sínu og fjórða hjá KFG sem gerði endanlega út um leikinn. Lokatölur 4-2 og eru meistararnir frá 2023 úr leik en KFG komið í 16-liða úrslitin.
Kormákur/Hvöt vann 3-1 sigur á Magna á Grenivík.
Magnamenn tóku forystuna á 30. mínútu eftir að gestirnir töpuðu boltanum. Ottó Björn Óðinsson lagði boltann yfirvegað á Gunnar Darra Bergvinsson sem skoraði.
Heimamenn gátu farið með tveggja marka forystu inn í hálfleikinn en fóru illa með færi undir lok hálfleiksins og var þeim refsað fyrir það í síðari.
Hálftíma fyrir leikslok skallaði Kristinn Bjarni Andrason boltanum í netið eftir hornspyrnu og sjö mínútum síðar skoraði Sigurður Pétur Stefánsson glæsilegt mark með þrumuskoti fyrir utan teig áður en Sigurður Bjarni Aadnegard gulltryggði sigurinn með skalla eftir hornspyrnu.
Stefán Freyr Jónsson, leikmaður Kormáks/Hvatar, sá rautt eftir leikslok, en ekki er almennilega vitað fyrir hvað. Lokatölur 3-1 fyrir Kormáki/Hvöt sem fer áfram í 16-liða úrslit.
Víkingur Ólafsvík vann frábæran 6-1 sigur á Elliða á Ólafsvíkurvelli þar sem Ingólfur Sigurðsson gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu.
Kwame Quee skoraði tvö fyrir Víking og Ingvar Freyr Þorsteinsson eitt.
Ægismenn unnu dramatískan 2-1 sigur á Haukum eftir framlengdan leik á BIRTU-vellinum í Hafnarfirði.
Jafnræði var með liðunum framan af og færin á báða bóga. Haukar fengu dauðafæri sem Ægismenn náðu að koma sér fyrir og stuttu síðar var bjargað á línunni hinum megin á vellinum.
Birkir Brynjarsson opnaði leikinn betur með því að koma Haukum yfir á 42. mínútu leiksins með góðu skoti. Guðmundur Axel Hilmarsson átti tvö dauðafæri á sex mínútum í byrjun síðari hálfleiksins, en klikkaði á báðum.
Það reyndist dýrt því Ægir jafnaði metin er Anton Breki Viktorsson skoraði með skoti fyrir utan teig og setti hann hnitmiðað í hægra hornið.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í venjulegum leiktíma og því var framlengt en þar skoruðu Ægismenn sigurmarkið þegar lítið var eftir af leiknum er Ivan Blanco skallaði hornspyrnu í markið og kom Ægismönnum áfram.
Árbær lagði Sindra að velli, 3-2, eftir ótrúlega endurkomu. Patrekur Máni Ingólfsson og Kristján Örn Þorvarðarson komu Sindramönnum í 2-0 á fyrsta hálftímanum en Árbæingar lögðu ekki árar í bát.
Kristján Daði Runólfsson skoraði tvö mörk sitt hvoru megin við hálfleikinn áður en Atli Dagur Ásmundsson tryggði sigurinn rúmum hálftíma fyrir leikslok.
Úrslit og markaskorarar:
Haukar 1 - 2 Ægir
1-0 Birkir Brynjarsson ('42 )
1-1 Anton Breki Viktorsson ('61 )
1-2 Ivan Rodrigo Moran Blanco ('117 )
Lestu um leikinn
Víkingur Ó. 6 - 1 Elliði
1-0 Ingólfur Sigurðsson ('4 )
1-1 Óttar Ögmundsson ('50 )
2-1 Kwame Quee ('63 )
3-1 Ingólfur Sigurðsson ('70 )
4-1 Ingvar Freyr Þorsteinsson ('75 )
5-1 Kwame Quee ('85 )
6-1 Ingólfur Sigurðsson ('88 )
KFG 4 - 2 Víðir
0-1 David Toro Jimenez ('13 )
1-1 Bóas Heimisson ('28 )
2-1 Kristján Ólafsson ('30 )
3-1 Jón Arnar Barðdal ('45 )
3-2 Kristófer Snær Jóhannsson ('84 )
4-2 Kristján Ólafsson ('90 )
Lestu um leikinn
Magni 1 - 3 Kormákur/Hvöt
1-0 Gunnar Darri Bergvinsson ('30 )
1-1 Kristinn Bjarni Andrason ('63 )
1-2 Sigurður Pétur Stefánsson ('70 )
1-3 Sigurður Bjarni Aadnegard ('93 )
Rautt spjald: Stefán Freyr Jónsson, Kormákur/Hvöt ('96) Lestu um leikinn
Sindri 2 - 3 Árbær
1-0 Patrekur Máni Ingólfsson ('17 )
2-0 Kristján Örn Þorvarðarson ('27 )
2-1 Kristján Daði Runólfsson ('42 )
2-2 Kristján Daði Runólfsson ('51 )
2-3 Atli Dagur Ásmundsson ('57 )
Athugasemdir