KV og Þróttur Vogum eru komin í 16-liða úrslit Fótbolti.net bikarsins eftir markaleiki í kvöld.
Vogamenn unnu 5-3 sigur á ÍH eftir framlengdan leik í Skessunni.
Heimamenn í ÍH voru komnir í góða stöðu hálfleik og tveimur mörkum yfir þökk sé Gísla Þresti Kristjánssyni og Brynjari Jónassyni en Vogamenn komu til baka í síðari með mörkum frá Franz Bergmann og Hreini Inga Örnólfssyni.
Guðni Sigþórsson kom Vogamönnum yfir með sinni fyrstu snertingu í framlengingunni og bætti Eyþór Orri Ómarsson við öðru. ÍH komst til baka með marki Benjamíns Bæring Þórssonar áður en Eyþór Orri gerði annað mark sitt þegar lítið var eftir af framlengingunni.
KV komst áfram eftir ótrúlegan 5-4 sigur á Hvíta riddaranum eftir framlengdan leik í Vesturbæ.
Sindri Sigurjónsson og Ríkharður Smári Gröndal komu Hvíta í 2-0 á rúmum tuttugu mínútum áður en Oddur Ingi Bjarnason náði að minnka muninn undir lok fyrri hálfleiks.
Samúel Már Kristinsson jafnaði metin fyrir KV þegar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og náði að knýja fram framlengingu.
Þar átti mikil dramatík sér stað. Varamaðurinn Trausti Þráinsson kom Hvíta yfir á 95. mínútu en Askur Jóhannsson tókst að jafna áður en Ríkharður svaraði í næstu sókn. Staðan 4-3 fyrir Hvíta í hálfleik framlengingar en á síðustu átta mínútum í síðari tryggði Magnús Valur Valþórsson KV sigurinn með tveimur mörkum og skaut Vesturbæingum áfram í 16-liða úrslitin.
Dregið verður í 16-liða úrslit í hádeginu á föstudag og verður drátturinn í beinni lýsingu á Fótbolta.net
KV 5 - 4 Hvíti riddarinn
0-1 Sindri Sigurjónsson ('9 )
0-2 Rikharður Smári Gröndal ('21 )
1-2 Oddur Ingi Bjarnason ('44 )
2-2 Samúel Már Kristinsson ('80 )
2-3 Trausti Þráinsson ('95 )
3-3 Askur Jóhannsson ('101 )
3-4 Rikharður Smári Gröndal ('102 )
4-4 Magnús Valur Valþórsson ('112 )
5-4 Magnús Valur Valþórsson ('115 )
ÍH 3 - 5 Þróttur V.
1-0 Gísli Þröstur Kristjánsson ('22 )
2-0 Brynjar Jónasson ('32 )
2-1 Franz Bergmann Heimisson ('65 )
2-2 Hreinn Ingi Örnólfsson ('73 )
2-3 Guðni Sigþórsson ('101 )
2-4 Eyþór Orri Ómarsson ('108 )
3-4 Benjamín Bæring Þórsson ('112 )
3-5 Eyþór Orri Ómarsson ('120 )
Athugasemdir