Ríkharður Daðason, þjálfari Fram, var ekki ánægður með fyrsta markið sem liðið fékk á sig í 3-2 tapinu gegn Keflavík í kvöld. Ríkharður vill meina að Einar Orri Einarsson hafi verið rangstæður þegar hann skoraði.
,,Maðurinn fær boltann einn og hálfan meter fyrir aftan hafsentana okkar. Ég spurði í hálfleik hver hefði spilað hann réttstæðan og það var fátt um svör. Ég ætla að vona að þessi ákvörðun sé rétt því annars erum við að setja met í dómgæslumálum í síðustu leikjum," sagði Ríkharður ósáttur eftir leik í kvöld.

,,Það er dæmd vítaspyrna á okkur í bikarúrslitunum þar sem brotið var fyrir utan teig og við skoruðum löglegt mark í þeim leik. Í Valsleiknum var dæmt víti á okkur þar sem er sparkað upp í hendi af 30 cm og það á aldrei að dæma víti."
,,Við vorum rændir víti í kjölfarið. Ég tel að við höfum skorað löglegt mark á fyrstu mínútu á Stjörnuvelli á fimmtudag þar sem við vorum flaggaðir rangstæðir. Þetta eru sex atriði með þessu og það erfitt að fá það til baka."
Framarar eru með 18 stig, fimm stigum frá fallsvæðinu og Ríkharður segir að liðið verði að fara að ná í stig.
,,Við þurfum að fá fleiri stig og stigasöfnun í seinni umferðinni er engin, það eru þrjú stig. Það er alltof lítið. Næstu tveir leikir eru gríðarleag mikilvægir upp á að lenda ekki í veseni fyrir síðustu umferðirnar. 18 stig munu sennilega ekki duga svo augljóslega þurfum við fleiri stig."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.