Stjarnan fór í heimsókn á Hásteinsvöll í Eyjum í kvöld þar sem þær mættu heimakonum í ÍBV sem höfðu betur með fimm mörkum gegn engu marki Stjönunnar.
Lestu um leikinn: ÍBV 5 - 0 Stjarnan
Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar var að vonum svekktur í leikslok.
„Vont að tapa 5-0," sagði Kristján og bætti við: „Þetta var athyglisverður leikur. Við náðum að eiga nokkur skot að marki í upphafi leiksins, við höfum ekki náð svona mörgum skotum að marki andstæðingsins í allt sumar á upphafs mínútunum og það var erfitt að sætta sig við það að vera undir mjög fljótlega í leiknum."
„Staðan 2-0 í hálfleik og svo kemur þriðja markið í upphafi seinni hálfleiks, mér fannst við bara eiga enga möguleika í seinni hálfleik," sagði Kristján.
Stjarnan fær Breiðablik í heimsókn í næstu umferð.
Athugasemdir





















