Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
   lau 27. júlí 2013 18:21
Hafliði Breiðfjörð
Heimir Guðjóns: Þurfum að fá þrjá leikmenn
Mynd: Brandur
,,Mér fannst spilamennskan ekkert sérstök en það jákvæða var að við fengum þrjú stig og héldum markinu hreinu. En við getum verið sammála um að við höfum oft spilað betur," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir 1-0 sigur á Þór í Kaplakrika í kvöld.

,,Mér fannst menn í byrjun leiks vera að spara sig og hugsa um Evrópuleikinn. Það kann aldrei góðri lukku að stýra og þess vegna var þessi leikur eins erfiður og raun bar vitni."

Heimir sagði í viðtali í lok síðasta mánaðar að hann ætlaði að styrkja FH liðið í félagaskiptaglugganum sem nú er opinn. Nú eru nokkrir dagar eftir og enginn leikmaður kominn.

,,Ég reikna með að ég fái einhverja leikmenn. Við erum að skoða þau mál og ekkert í hendi ennþá," sagði Heimir.

,,Við þurfum að fá helst þrjá leikmenn, einn í vörnina, einn á miðjuna og einn í framlínuna," sagði Heimir en býst hann við að halda Birni Daníel út tímabilið á meðan áhugi Viking í Noregi er svo mikill?

,,Ég hef ekki hugmynd um það. Ég vinn ekki upp fyrir mig. Þú verður að spyrja aðra menn að því. Auðvitað viljum við hafa Björn Daníel út tímabilið og það væri frábært ef það gengi eftir því hann hefur spilað gríðarlega vel í sumar. Auðvitað yrði það áfall fyrir okkur ef hann myndi ekki klára tímabilið en við vonum að hann klári það."
Slapp
banner