,,Okkur fannst þetta bara skemmtilegur leikur," sagði Kristján Guðmundsson léttur þrátt fyrir 3-2 tap gegn Breiðabliki.
,,Strákarnir sem spiluðu í dag stóðu sig mjög vel. Frammistaðan mjög góð þrátt fyrir tap. Það vantaði sex leikmenn í hópinn frá í seinasta leik og þar af fimm byrjunarliðsmenn. Leikurinn bar aðeins keim af því að það var ekkert undir. Markmiðið var að landa sjöunda sætinu en það gekk ekki en við göngum stoltir frá þessu verki."
,,Vítaspyrnan í lokin sem þeir vinna leikinn á var rétt. En við erum mjög óánægðir að Elfar hafi ekki verið rekinn útaf í fyrri hálfeik því þetta var svo áberandi að hann togaði í hendina á Herði þegar Hörður var kominn einn í gegn. Þetta var svo augljóst bæði fyrir aðstoðardómara tvö og dómarann," en þarna átti Kristján en niðurstaða þessa atviks var að Elfar Freyr slapp með skrekkinn og að Hörður Sveinsson fékk spjaldið í hans stað.
Um framtíð sína með Keflavík hafði Kristján þetta að segja; ,,Það er ekki búið að ganga frá einu né neinu. Mitt verkefni var að koma inn, blása lífi í liðið og halda því helst í deildinni. Eftir helgi ræðum við framtíðina og sjáum hvort það sé einhver flötur fyrir samstarfi. Ég er alveg pollrólegur, skoða alla hluti og sel fasteignir út í rauðan dauðann."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.






















