Ryan Mason aðstoðarþjálfari Tottenham er efstur á óskalista West Bromwich Albion sem er í leit að nýjum aðalþjálfara.
Tottenham og West Brom eru að bíða eftir að Mason taki ákvörðun varðandi framtíð sína, en hann var einnig orðaður við þjálfarastarfið hjá belgíska stórveldinu Anderlecht í fyrra.
Mason er aðeins 33 ára gamall en hann lagði fótboltaskóna á hilluna vegna slæmra höfuðmeiðsla og hefur fengist við þjálfun síðan. Hann ólst upp hjá Tottenham og spilaði 70 keppnisleiki fyrir meistaraflokk.
Sky Sports greinir frá því að Mason ætlar að taka sér nokkra daga til að hugsa sig um áður en hann tekur ákvörðun varðandi framtíðina.
Mason hefur í tvígang tekið við þjálfarastarfinu hjá Tottenham til bráðabirgða og gæti viljað vera áfram hjá félaginu til að undirbúa sig enn betur fyrir draumastarfið sem aðalþjálfari Tottenham.
Eric Ramsay, þjálfari Minnesota United í MLS deildinni, kemur einnig til greina fyrir þjálfarastarfið hjá West Brom ásamt Paul Simonis hjá Go Ahead Eagles í Hollandi og Marti Cifuentes þjálfara QPR.
Tony Mowbray var rekinn úr þjálfarastól West Brom í apríl.
Athugasemdir