Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Arsenal reynir að kaupa Sesko
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Félagaskiptasérfræðingarnir Florian Plettenberg og Fabrizio Romano eru sammála um að Arsenal sé byrjað að þreifa fyrir sér varðandi möguleg kaup á slóvenska framherjanum Benjamin Sesko.

RB Leipzig vill fá 92 milljónir punda fyrir Sesko, sem kom að 27 mörkum í 45 leikjum á nýliðinni leiktíð.

Sesko, sem verður 22 ára á morgun, hefur einnig verið orðaður við önnur stórlið úr ensku deildinni svo sem Chelsea, Manchester United og Liverpool en Arsenal virðist leiða kapphlaupið sem stendur.

Arsenal hefur reynt að krækja í Sesko síðustu 18 mánuði en Leipzig hefur hafnað öllum viðræðum þar til núna.

Mikel Arteta hefur miklar mætur á Sesko en Arsenal hefur einnig verið sterklega orðað við sænsku framherjana Alexander Isak og Viktor Gyökeres.

Isak þykir of dýr á meðan Arteta virðist vera hrifnari af Sesko heldur en Gyökeres.

Þessa dagana er Arsenal að ganga frá kaupum á miðjumanninum Martín Zubimendi og reyna að semja við Thomas Partey áður en samningur hans rennur út.

Arsenal er einnig í samningsviðræðum við miðverðina sína William Saliba og Gabriel Magalhaes.
Athugasemdir