Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Jón Þór hrósar Ómari Birni en á eftir að taka samtalið við hann
ÍA vann sinn þriðja leik í sumar í gær.
ÍA vann sinn þriðja leik í sumar í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ómar Björn átti mjög góðan leik.
Ómar Björn átti mjög góðan leik.
Mynd: ÍA
jón Þór horfði á leikinn úr glersal Blika.
jón Þór horfði á leikinn úr glersal Blika.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árni Marinó leyfði Skagamönnum að súpa hveljur í upphafi seinni hálfleiks, en átti annars mjög góðan leik.
Árni Marinó leyfði Skagamönnum að súpa hveljur í upphafi seinni hálfleiks, en átti annars mjög góðan leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA skoraði fjögur mörk í gær.
ÍA skoraði fjögur mörk í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ómar Björn Stefánsson átti stóran þátt í því að ÍA vann Breiðablik á Kópavogsvelli í gær. Hann skoraði eitt mark og lagði upp annað í leiknum, var alltaf að og réðu varnarmann Blika ekkert við hann. Sóknarmaðurinn var hins vegar stálheppinn í lok fyrri hálfleiks að fá einungis gult spjald þegar hann fór með upphandlegginn í andlitið á Valgeiri Valgeirssyni, leikmanni Breiðabliks, þegar hann sveiflaði olnboganum aftur fyrir sig í tilraun til að losa sig frá varnarmanninum sem hafði gripið í hann.

Fótbolti.net ræddi við Jón Þór Hauksson, þjálfara ÍA, um leikinn í gær og frammistöðu Ómars.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  4 ÍA

„Það var aðdragandinn sem var lykillinn, við erum búnir að vera að bæta okkur, verið gríðarlega góður stígandi í liðinu þó að úrslitin hafi ekki verið að skila sér. Við höfum verið að bæta í okkar leik, bæði í FH leiknum og Víkingsleikurinn var heilt yfir fínn leikur. Það leiddi að þessum úrslitum í gær. Frammistaða liðsins hefur verið batnandi að undanförnu og það gerði það að verkum að við náðum að vinna þennan leik í gær," segir Jón Þór sem tók út leikbann í gær og var því ekki á hliðarlínunni.

Hvernig var að fylgjast með þessu í gær og hvar varstu?

„Ég fékk góðfúslegt leyfi og höfðinglegar móttökur frá Blikum, fékk að vera upp í glersalnum hjá þeim og horfði á leikinn þar. Auðvitað er það ekki ákjósanlegt, en ég hafði góða yfirsýn yfir leikinn og frábæra frammistöðu minna manna."

Unnið sig upp í þessa frammistöðu
Ómar Björn Stefánsson, hvar ertu búinn að vera geyma hann?

„Hann hefur hægt og rólega verið að vinna sig upp í þessa frammistöðu. Hann kom til okkar síðasta haust, þá nýkominn frá Bandaríkjunum. Það hefur gengið á ýmsu síðan, hann hefur verið að glíma við meiðsli og veikindi - dottið út á köflum. Hann hefur verið að vinna sig inn í það líkamlega ástand sem þarf til að leysa þetta hlutverk fyrir okkur. Við vissum allan tímann hvað býr í honum og hversu góður leikmaður hann er. Hann hefur þurft tíma til að komast í það form sem hann vill vera í. Það var virkilega ánægjulegt að sjá hann uppskera eftir þá miklu vinnu sem hann hefur lagt á sig til að komast þangað, frábær frammistaða hjá honum."

„Einn styrkleiki hjá honum er að keyra á menn, hann er gríðarlega öflugur í að finna svæðin á bakvið og hann er líka mjög öflugur í því að fá boltann í fætur og fara einn á einn á varnarmenn. Hann er góður markaskorari. Ég held að hann, ásamt öðrum í liðinu, að það hefur verið bæting í síðustu leikjum og með því vex trú og sjálfstraust með. Það leysist úr læðingi frábær frammistaða hjá honum."


Ekki fallegar hugsanir sem komu upp
Hvaða tilfinningar og hugsanir fóru í gegnum höfuð Jóns Þórs í upphafi seinni hálfleiks þegar Skagamenn tóku miðju, boltinn fór til baka á Árna Marinó í markinu en hann missti boltann mjög klaufalega undir sig.

„Hugsanirnar voru ekkert sérstaklega fallegar, ég var feginn að vera í búrinu þá," segir Jón Þór og hlær.

Þú hefðir öskrað eitthvað ljótt inn á? „Það gæti bara vel verið, já. En það er eins með Árna og aðra leikmenn að þetta snýst ekki um að gera mistök heldur hvernig víð bregðumst við þegar mistök eru gerð og ég var mjög ánægður með hann og liðið í þeim þætti leiksins."

Mikill léttir að sjá svo boltann fara framhjá þínu marki, en ekki inn í það?

„Auðvitað hafði maður áhyggjur af því, miðað við hvernig gengið hjá okkur er búið að vera og hversu langt síðan síðasti sigurleikur kom, að liðið gæti verið brothætt. Ég hafði kannski mestar áhyggjur af því að nákvæmlega þetta atvik myndi brjóta eitthvað okkar sjálfstraust og kraft sem hafði verið í leiknum. Sem betur fer erum við með öfluga karaktera og leiðtoga í liðinu, þannig það var ekki að sjá að þetta kæmi mönnum eitthvað úr jafnvægi. Það var gríðarlega ánægjulegt að sjá það í kjölfarið."

Telur gult spjald rétta niðurstöðu
Þá að atvikinu inn á vítateig Breiðabliks í lok fyrri hálfleiks þegar Ómar Björn fer í Valgeir. Tókstu samtalið við hann, að hann verði að passa sig?

„Nei, ég á eftir að taka það samtal með honum. En þetta er svolítið beggja blands, það var ein myndavél á þessum leik og atvikið lítur mjög illa út fyrir Ómar út frá því sjónarhorni. Þegar það er skoðað í spiideo vélinni (sem félögin nota) sést að Valgeir tekur í höndina á Ómari sem orsakar þessi viðbrögð að hann fálmar höndinni til baka, er að reyna losa sig. Auðvitað er mjög óheppilegt að það lendi í andlitinu á honum, en að mínu mati var þetta ekki hreint og klárt olnbogaskot og þ.a.l. fannst mér dómarinn taka rétta ákvörðun með því að gefa honum gult spjald fyrir. En eins og ég segi, þá er þetta óheppilegt og hefði í sjálfu sér ekki verið hægt að segja neitt ef hann hefði fengið rautt fyrir þetta. Ég skoðaði þetta aftur, úr öðru sjónarhorni, og tel að dómarinn hafi gert rétt þarna."

Ég skil vinkilinn að Valgeir hafi gripið í hann á undan, en fyrir mér er hann að bjóða fáránlega mikilli hættu heim, ertu ekki sammála því?

„Ég er algjörlega sammála því. Það er klárt mál að það er verið að bjóða hættunni heim, sérstaklega þar sem þetta lendir í andlitinu á Valgeiri. Það hefði ekki verið hægt að segja neitt ef að liturinn hefði orðið annar. En ég tel að þetta hafi verið réttur dómur," segir Jón Þór.
Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar
Athugasemdir
banner
banner