
Ísland gerði mjög svo svekkjandi jafntefli gegn Noregi í Þrándheimi í kvöld. Stelpurnar okkar voru lengst af yfir í leiknum en Noregur jafnaði seint.
Hér fyrir neðan má sjá einkunnagjöf Fótbolta.net úr leiknum.
Hér fyrir neðan má sjá einkunnagjöf Fótbolta.net úr leiknum.
Lestu um leikinn: Noregur 1 - 1 Ísland
Cecilía Rán Rúnarsdóttir - 8
Var frábær í markinu í dag; varði vel og greip vel inn í. Sýndi það af hverju hún var markvörður ársins á Ítalíu. Mögulega hennar besti landsleikur til þessa og klárlega eitthvað til að byggja á.
Natasha Anasi - 6
Lenti í smá basli með Caroline Graham Hansen á köflum, en barðist eins og ljón og skilaði sínu vel.
Glódís Perla Viggósdóttir - 7
Fyrirliðinn mætti aftur í liðið og skilaði frammistöðu eins og Glódís er vön. Var óheppin að skora sjálfsmark.
Ingibjörg Sigurðardóttir - 6
Gerði ein slæm mistök í upphafi seinni hálfleiks sem hefðu auðveldlega getað kostað mark og svo var spilað á bak við hana í markinu. Átti samt á löngum köflum mjög góðan leik og gerði mjög vel eftir mark Noregs.
Guðrún Arnardóttir - 6
Var sterk varnarlega lengst af en skilaði ekki miklu sóknarlega. Það er ekki hægt að gera mikla kröfu á hana þar í ljósi þess að hún er miðvörður.
Hildur Antonsdóttir - 6
Átti fínan leik á miðsvæðinu en hefði mátt vera rólegri á boltanum á köflum og skila honum betur frá sér.
Alexandra Jóhannsdóttir - 7
Byrjaði ekkert sérstaklega vel og átti eina mjög vonda sendingu snemma leiks. En hún óx vel inn í leikinn og var sterk í seinni hálfleik.
Sveindís Jane Jónsdóttir - 7
Skoraði markið sem skildi liðin, geggjað mark! Það hefur oft vantað upp á hjá henni á síðasta þriðjungi en þarna gerði hún stórkostlega. Hljóp mikið fyrir liðið.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - 7
Geggjuð stoðsending í markinu og sýndi mikil gæði í leiknum. Virkilega góð sóknarlega en hún er örugglega mjög svekkt að hafa ekki skorað í lok fyrri hálfleiks.
Sandra María Jessen - 7
Kom sterk inn í fremstu víglínu og barðist mjög vel fyrir liðið. Eins og Karólína, þá er hún örugglega svekkt að hafa ekki skorað.
Hlín Eiríksdóttir - 6
Hlín átti góðar rispur í dag og hljóp mikið fyrir liðið. Það skapaðist yfirleitt einhver hætta þegar hún fékk boltann á síðasta þriðjungi.
Varamenn:
Guðný Árnadóttir - 6
Dagný Brynjarsdóttir - 6
Agla María Albertsdóttir - 7
Aðrar spiluðu ekki nóg til að fá einkunn
Athugasemdir