
Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, var að vonum sáttur með frammistöðu lærisveina sinna eftir 4-1 sigur gegn Völsungi á AVIS-vellinum í dag.
„Ég er mjög sáttur við þessi þrjú stig og frammistaðan var þannig að þetta var sanngjarnt og rétt, held ég," sagði Venni.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 4 - 1 Völsungur
Þróttarar eru skeinuhættir á síðasta þriðjungi vallarins og skoruðu fjögur mörk í dag. Þar af koma tvö mörk af bekknum. Sigurvin er ánægður með sóknarleikinn.
„Hún er sjóðandi heit. Frábært fyrir mig sem þjálfara að vera með svona menn á bekknum líka, fyrir utan byrjunarliðsmennina, þannig að það er bara heilbrigð og góð samkeppni."
Þróttur situr sem stendur í efsta sæti Lengjudeildarinnar en þó á heil umferð eftir að fara fram. Byrjunin hefur verið sterkari en marga grunaði fyrir tímabil.
„Þetta er alltaf sama sagan. Maður veit í rauninni ekkert hvað gerist þegar sumarið byrjar. Við erum orðnir aðeins 'rútíneraðri' en í fyrra og okkar kerfi er aðeins slípaðra en í fyrra."