Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 22:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þrándheimi
Sköpuðu mjög skrítna stemningu á leik Íslands í kvöld
Icelandair
EM KVK 2025
Norsku útskriftarnemarnir.
Norsku útskriftarnemarnir.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stelpurnar okkar gerðu jafntefli við Noreg í kvöld.
Stelpurnar okkar gerðu jafntefli við Noreg í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var svolítið furðuleg stemning á Lerkendal leikvanginum í Þrándheimi í kvöld þegar Ísland gerði jafntefli við Noreg í Þjóðadeild kvenna.

Í einni stúkunni hafði rauðklæddur hópur komið sér saman með hátalara. Svo virðist sem um einhvers konar útskriftarhóp hafi verið að ræða, eða eitthvað í þá áttina. Þetta minnti að minnsta kosti á dimmiteringahóp á Íslandi.

Lestu um leikinn: Noregur 1 -  1 Ísland

Einhvern veginn smygluðu þau hátalaranum inn á völlinn og þegar leikurinn var nýbyrjaður, þá byrjuðu þau að spila alls konar tónlist.

Á meðal laga sem þau spiluðu voru Waga Waga með Shakiru, Run the World (Girls) með Beyonce og Sweet Caroline með Neil Diamond.

Það sem var kannski skrítnast í þessu var að þetta var ekki stoppað af vallarstarfsmönnum, en það er vanalega ekki leyfilegt á fótboltaleikjum að mæta með hátalara og spila tónlist allan leikinn. Þau voru líklega með eitthvað magn áfengis í blóðinu, það er allavega gisk fréttaritara miðað dansinn sem þau tóku með lögunum.

„Ég varð var við einhverja tónlist þarna. Mér fannst það mjög sérstakt að þú fengir að vera á vellinum og spila tónlist fyrir aftan markið hjá okkur. Það var mjög áhugavert," sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, eftir leikinn í kvöld.

„Mér fannst þetta mjög sérstakt."

Hægt er að skoða myndband frá vellinum á Instagram síðu Fótbolta.net.
Athugasemdir
banner
banner