
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir verður ekki með íslenska landsliðinu gegn Noregi í dag þar sem hún var að útskrifast úr Harvard háskóla í Bandaríkjunum.
Um er að ræða einn virtasta háskóla í heimi en ásamt því að stunda þar nám þá var Áslaug Munda þar lykilmaður í skólaliðinu.
Um er að ræða einn virtasta háskóla í heimi en ásamt því að stunda þar nám þá var Áslaug Munda þar lykilmaður í skólaliðinu.
Áslaug Munda verður 24 ára í næstu viku og á að baki 20 A-landsleiki, en hún kemur til móts við liðið fyrir leikinn gegn Frakklandi í næstu viku.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, sagði við Fótbolta.net í gær að þetta hefði verið ákvörðun sem hefði verið tekin fyrir svolitlu síðan. Hann hefði stutt við bakið á Áslaugu Mundu að vera við útskriftina.
„Þetta er löngu ákveðið en ég bara gleymdi að segja ykkur þetta á blaðamannafundinum um daginn," sagði Steini.
„Samtölin okkar voru bara þannig að hún var tilbúin að spila ef ég myndi segja henni að mæta í leikinn en að sama skapi var löngun hjá henni til að fara í útskriftina. Ég sagði henni bara að fara í útskriftina og koma svo til móts við okkur seinna."
Þetta er ekki eitthvað sem þú ert ósáttur við?
„Alls ekki. Þetta var bara samtal á milli okkar og það er langt síðan við áttum það. Þetta var ekkert flókið. Ég skil það vel að hún vildi fara í útskriftina því hún var búin að ganga í gegnum ýmislegt á tíma sínum í Bandaríkjunum. Það er stórt fyrir hana að klára þetta og gera það með stæl," sagði landsliðsþjálfarinn.
Áslaug Munda fékk slæmt höfuðhögg á meðan hún var þarna úti sem gerði henni erfitt fyrir en samt sem áður, eins og Steini segir, er hún er að klára þetta með stæl. Við á Fótbolta.net óskum henni innilega til hamingju með þennan stóra áfanga.
Athugasemdir