KSÍ greindi frá því í dag að Ásgeir Helgi Orrason hefði þurft að draga sig úr U21 landsliðshópnum, kallað hefur verið í Baldvin Þór Berndsen í stað Ásgeirs. Landsliðið kemur saman eftir helgi en framundan eru æfingaleikir gegn Egyptalandi (6. júní) og Kólumbíu (9. júní).
Ásgeir er leikmaður Breiðabliks og þurfti að fara af velli í hálfleik gegn ÍA í gær. Í liði ÍA var einmitt Baldvin Þór sem gæti spilað sinn þriðja og fjórða U21 landsleik ef hann kemur við sögu í komandi leikjum.
ÍA keypti Baldvin af uppeldisfélaginu Fjölni í vetur. Þetta er önnur breytingin sem Ólafur Ingi Skúlason hefur þurft að gera á hópnum en fyrr í þessari viku var Tómas Orri Róbertsson kallaður inn í stað Júlíusar Mars Júlíussonar.

U21 hópurinn
Lúkas J. Blöndal Petersson - Hoffenheim - 8 leikir
Halldór Snær Georgsson - KR - 3 leikir
Logi Hrafn Róbertsson - NK Istra - 15 leikir
Hlynur Freyr Karlsson - Brommapojkarna - 11 leikir
Eggert Aron Guðmundsson - Brann - 11 leikir, 1 mark
Hilmir Rafn Mikaelsson - Viking Stavanger - 11 leikir, 3 mörk
Daníel Freyr Kristjánsson - FC Frederica - 8 leikir
Benoný Breki Andrésson - Stockport FC - 8 leikir, 3 mörk
Ágúst Orri Þorsteinsson - Breiðablik - 3 leikir
Helgi Fróði Ingason - Helmond Sport - 3 leikir
Jóhannes Kristinn Bjarnason - KR - 3 leikir, 1 mark
Róbert Frosti Þorkelsson - Gais - 3 leikir
Baldur Kári Helgason - FH - 2 leikir
Haukur Andri Haraldsson - ÍA - 2 leikir, 1 mark
Hinrik Harðarson - Odd - 2 leikir, 1 mark
Daníel Tristan Gudjohnsen - Malmö FF
Kjartan Már Kjartansson - Stjarnan
Nóel Atli Arnórsson - Aalborg BK
* Tómas Orri Róbertsson - FH
* Baldvin Þór Berndsen - ÍA - 2 leikir
Athugasemdir