Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
Alex Þór: „Steven Caulker? - Þetta hefur skautað framhjá manni"
Stjarnan aðeins 26% með boltann - „Að einhverju leyti óborguð yfirvinna"
„Sorglegt að fá á sig fjögur mörk gegn Stjörnuliði sem spilaði ekki betur en raun bar vitni"
Túfa: Að mínu mati besti leikmaður deildarinnar
Sverrir Páll: Við getum stigið upp og skorað mörkin
Láki fann fyrir létti: Vicente breytti leiknum
Magnús Már: Fullt af dómum sem sérfræðingar mega skoða
Bjarni Aðalsteins: Ég hef aldrei spilað svona leik áður
Rúnar Kristins: 12 mínútur í uppbótartíma ég hef aldrei upplifað það áður
Heimir Guðjóns ósáttur með vinnuframlagið
Alli Jói: Úrslitin eftir 90 mínútur ljót
Haddi: Samdi við Rúnar Kristins
Sigurvin Ólafs: Sóknin er sjóðandi heit
Ómar Björn heppinn að fá ekki rautt: Þarf maður ekki lukku í þessu?
Viktor Jóns: Æðislegt að upplifa þetta og finna þetta aftur
Dóri Árna: Sjá það allir sem eru á vellinum nema fjórir menn
Sölvi: Vorum til í slagsmál og með yfirhöndina í návígjum
Davíð Smári: Komust upp með að væla og liggja í grasinu
„Bara frábært" að vera komin aftur í landsliðið
Tilbúin í nýja áskorun - „Verðið bara að bíða eins spennt og ég"
   fim 29. maí 2025 19:04
Anton Freyr Jónsson
Viktor Jóns: Æðislegt að upplifa þetta og finna þetta aftur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður ótrúlega vel. Frábær leikur að okkar hálfu í dag og geggjuð liðsframmistaða og þetta var bara akkúrat það sem við þurftum á þessum tímapunkti" sagði Viktor Jónsson leikmaður ÍA eftir 4-1 sigurinn á Breiðablik á Kópavogsvelli í dag.


Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  4 ÍA

„Loksins fylgdu mörkin með og við náðum að loka fyrir hjá okkur og sýndum góða frammistöðu á löngum kafla gegn Víking en fengum ekkert fyrir það. Við höfum átt ágætis spilakafla í sumar en þetta frá fyrstu mínútu og til þeirra nítugustu þá vera þetta geggjuð frammistaða í dag."

„Við gengum á lagið, við ætluðum að breika á þá og það var það sem við lögðum upp með og það var æðislegt að upplifa þetta og finna þetta aftur."

Viktor Jónsson skoraði eitt í dag en hefði átt að skora svona 5 ef hann hefði nýtt öll tækifærin sem hann fékk í leiknum í dag. Hann er þakklátur að þetta hefði komið í dag frekar en einhverjum öðrum leik. 

„Bara VÁ. Ég veit það ekki sko, blanda af þreytu og bara hausinn sko. Klikkaði á fyrsta svo kom næsta snögglega á eftir og klikkaði á því og ég held bara að einbeitingin hafi ekki verið nægilega mikil og það er langt síðan ég hef klikkað á svona mörgum í röð en það er ágætt að gera það í svona leik frekar en einhverjum öðrum."

Viðtalið við Viktor Jónsson má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.



Athugasemdir
banner