Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
banner
   fös 30. maí 2025 10:30
Innkastið
Skoraði sitt fyrsta mark í 20 mánuði - „Vonandi komið blóð í vatnið“
Aron Jóhannsson var í liði umferðarinnar.
Aron Jóhannsson var í liði umferðarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Jóhannsson var maður leiksins og skoraði í 2-0 útisigri Vals gegn Aftureldingu í Bestu deildinni í gær. Þetta var langþráð mark hjá Aroni sem hafði ekki skorað í deildinni síðan 3. september 2023.

Það var því tæplega 20 mánaða bið sem lauk í gær en Aron var valinn í lið umferðarinnar.

Lestu um leikinn: Afturelding 0 -  2 Valur

„Flottur í að stjórna liðinu og skorar sitt fyrsta mark í ár. Þetta vonandi gefur honum mikið," skrifaði Brynjar Óli Ágústsson, fréttamaður Fótbolta.net, í skýrslu sinni um leikinn.

„Hann þarf að fara að koma með meira að borðinu, maður með þennan prófíl þarf að gera það," segir Elvar Geir í Innkastinu.

„Vonandi núna er komið blóð í vatnið hjá Völsurum og hákarlinn er kannski að vakna. Tilfinningin undanfarin ár er að ef þeir hafa ekki að neinu að keppa þá er þeim drullusama. Ég er að vona að Aron og þessir gæjar stígi upp núna," segir Valur Gunnarsson í þættinum.

Aron, sem er 34 ára, er á sínu fjórða tímabili með Val en hann átti farsælan atvinnumannaferil þar sem hann lék í þýsku Bundesligunni og fyrir bandaríska landsliðið. Aron var fram­herji stærst­an hluta fer­ils­ins en er í dag miðjumaður.

„Menn sem þykj­ast vera sér­fræðing­ar í stúk­unni horfa kannski ekki á leik­ina. Ég er orðinn djúp­ur miðjumaður og veit ekki til þess að þeir eigi að skora mörk­in. Við erum með góða menn fram á við sem skora hell­ing af þeim," sagði Aron við mbl.is eftir leikinn í gær.

Hér að neðan má sjá svipmyndir úr leiknum í gær.


Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 9 6 2 1 18 - 8 +10 20
2.    Vestri 9 5 1 3 11 - 5 +6 16
3.    Breiðablik 9 5 1 3 14 - 15 -1 16
4.    Valur 9 4 3 2 20 - 12 +8 15
5.    Stjarnan 9 4 1 4 16 - 17 -1 13
6.    Fram 9 4 0 5 15 - 15 0 12
7.    ÍBV 9 3 2 4 9 - 15 -6 11
8.    KA 9 3 2 4 9 - 16 -7 11
9.    KR 9 2 4 3 26 - 22 +4 10
10.    FH 9 3 1 5 15 - 14 +1 10
11.    Afturelding 9 3 1 5 8 - 13 -5 10
12.    ÍA 9 3 0 6 12 - 21 -9 9
Athugasemdir
banner
banner