FC Kaupmannahöfn 3 - 0 Silkeborg
1-0 Jordan Larsson ('3)
2-0 Lukas Lerager ('34)
3-0 Mohamed Elyounoussi ('38)
1-0 Jordan Larsson ('3)
2-0 Lukas Lerager ('34)
3-0 Mohamed Elyounoussi ('38)
FC Kaupmannahöfn tryggði sér danska bikarinn með þægilegum sigri í úrslitaleiknum gegn Silkeborg í dag. Rúnar Alex Rúnarsson var ekki með í leikmannahópi FCK.
Jordan Larsson, Lukas Lerager og Mohamed Elyounoussi gerðu út um viðureignina í fyrri hálfleik og urðu lokatölur 3-0.
Silkeborg reyndi að verja bikarmeistaratitilinn frá því í fyrra, þegar Stefán Teitur Þórðarson var í lykilhlutverki og var valinn sem besti leikmaður vallarins í úrslitaleiknum. Sú tilraun mistókst gegn sterku liði FCK.
Kaupmannahöfn er sigursælasta félag danska bikarsins. Þetta er í tíunda sinn sem félagið vinnur bikarinn.
AGF er næstsigursælasta félagslið keppninnar með níu titla.
Athugasemdir