Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
Alex Þór: „Steven Caulker? - Þetta hefur skautað framhjá manni"
Stjarnan aðeins 26% með boltann - „Að einhverju leyti óborguð yfirvinna"
„Sorglegt að fá á sig fjögur mörk gegn Stjörnuliði sem spilaði ekki betur en raun bar vitni"
Túfa: Að mínu mati besti leikmaður deildarinnar
Sverrir Páll: Við getum stigið upp og skorað mörkin
Láki fann fyrir létti: Vicente breytti leiknum
Magnús Már: Fullt af dómum sem sérfræðingar mega skoða
Bjarni Aðalsteins: Ég hef aldrei spilað svona leik áður
Rúnar Kristins: 12 mínútur í uppbótartíma ég hef aldrei upplifað það áður
Heimir Guðjóns ósáttur með vinnuframlagið
Alli Jói: Úrslitin eftir 90 mínútur ljót
Haddi: Samdi við Rúnar Kristins
Sigurvin Ólafs: Sóknin er sjóðandi heit
Ómar Björn heppinn að fá ekki rautt: Þarf maður ekki lukku í þessu?
Viktor Jóns: Æðislegt að upplifa þetta og finna þetta aftur
Dóri Árna: Sjá það allir sem eru á vellinum nema fjórir menn
Sölvi: Vorum til í slagsmál og með yfirhöndina í návígjum
Davíð Smári: Komust upp með að væla og liggja í grasinu
„Bara frábært" að vera komin aftur í landsliðið
Tilbúin í nýja áskorun - „Verðið bara að bíða eins spennt og ég"
   fim 29. maí 2025 19:38
Haraldur Örn Haraldsson
Rúnar Kristins: 12 mínútur í uppbótartíma ég hef aldrei upplifað það áður
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson þjálfari Fram var svekktur með leik sinna manna í dag eftir að þeir töpuðu 2-1 fyrir KA, þar sem gestirnir skoruðu mark í uppbótartíma.


Lestu um leikinn: Fram 1 -  2 KA

„Það er alltaf jafn svekkjandi að tapa í uppbótartíma. Þetta er bara svona sem fótboltinn er. Þeir náðu að skapa mikinn usla með fyrirgjöfum og sendingum inn í vítateiginn okkar. Við bara náðum ekkert að stoppa þá, mér fannst við lélegir í dag og áttum ekki skilið mikið út úr þessu. Í uppbótartíma þegar við erum að reyna að þrýsta inn sigurmarki og þeir líka. Þá opnast þetta aðeins í restina, KA búið að vera betra liðið fannst mér heilt yfir, kannski fyrir utan fyrstu 15-20 mínúturnar þar sem var jafnræði og við kannski aðeins með yfirhöndina. Heilt yfir held ég að þetta sé bara sanngjörn úrslit."

Már Ægisson fékk höfuðhögg í fyrri hálfleik og fór meiddur af velli. Hann þurfti svo að fara með sjúkrabíl upp á spítala eftir það.

„Við vitum ekki alveg hver staðan er hjá honum. Hann er með gríðarlega mikla bólgu sem spratt út hjá gagnauganu hjá honum strax. Þannig hann var fluttur með sjúkrabíl. Maður hræðist það að hann gæti verið eitthvað frá með heilahristing og annað, en við vonum það besta."

Alex Freyr Elísson fór einnig meiddur af velli, en hann hafði komið inn á fyrir Má.

„Alex snerist á ökkla í einhverju návígi, eitthvað sem bara gerist. Alls ekki gott, jafnt fyrir okkur og KA, það er ekki gaman að missa menn í meiðsli. Tala nú ekki um svona snemma í leiknum, þetta var staðfest í fyrri hálfleik þegar bætt er við 12 mínútum, maður hefur aldrei upplifað það áður. Það var mikið um meiðsli, en ég held að í engum af þessum tilvikum hafi verið einhver læti í leiknum. Þetta voru bara tvö lið að berjast um boltann. Það er kannski bara helst þegar Már fær olnbogann í andlitið, en það er bara eins og gengur og gerist."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Athugasemdir
banner