Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 21:43
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeild kvenna: Stórsigrar í stórleikjunum
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það var nóg um að vera í Þjóðadeild kvenna í kvöld þar sem stórleikir fóru fram meðal þjóða í A-deild.

Stærstu þjóðirnar rústuðu leikjum sínum í kvöld, þar sem Spánn, Þýskaland, England og Frakkland unnu stórsigra.

Frakkland, sem er í riðli með Íslandi, rúllaði yfir Sviss með fjórum mörkum gegn engu. Stelpurnar okkar mæta Frökkum í lokaumferðinni og þurfa helst sigur til að eiga von í baráttunni um 2. sætið.

Þær frönsku voru komnar í þriggja marka forystu á fyrstu 20 mínútum leiksins.

Spánn rúllaði þá yfir Belgíu í leik þar sem Esther Gonzalez Rodriguez og Athenea del Castillo settu sitthvora tvennuna. Lokatölur 1-5.

Þýskaland skoraði fjögur mörk gegn Hollandi og var Lea Schüller atkvæðamest með tvennu á meðan Agnes Beever-Jones setti þrennu í fyrri hálfleik fyrir England gegn Portúgal.

Englendingar sigruðu viðureignina 6-0 eftir að hafa gert 1-1 jafntefli í fyrri leiknum á útivelli.

Þessi úrslit þýða að Þýskaland er búið að tryggja sér toppsæti síns riðils, en þær frönsku voru löngu búnar að tryggja toppsætið í íslenska riðlinum.

Þá er Spánn í frábærri stöðu fyrir lokaumferðina gegn Englandi þegar þessi tvö stórveldi eigast við í úrslitaleik um toppsæti riðilsins. Spánverjar eru með tveggja stiga forystu og spila leikinn á heimavelli.

Að lokum tapaði Skotland botnslag gegn Austurríki og fellur því niður í C-deildina.

Einnig má nefna að Finnland og Pólland sigruðu síðustu leiki dagsins í B-deildinni. Pólverjar tryggðu sér þannig þátttökurétt í A-deild á meðan Finnar fara í umspil.

Frakkland 4 - 0 Sviss

Belgía 1 - 5 Spánn

Þýskaland 4 - 0 Holland

England 6 - 0 Portúgal

Skotland 0 - 1 Austurríki

Belarús 0 - 3 Finnland

N-Írland 0 - 4 Pólland

Athugasemdir
banner
banner