„Þetta var örugglega best spilaði leikur sumarsins hjá okkur í dag, við hefðum getað skorað svona sjö í viðbót. Vorum ekki alveg að nýta færin en við unnum" sagði Ómar Björn Stefánsson leikmaður ÍA eftir 4-1 sigurinn á Breiðablik á Kópavogsvelli í dag
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 4 ÍA
„Þetta eru frammistöður sem við erum búnir að vera sýna í seinustu leikjum en kannski ekki búnir að uppskera það sem við erum búnir að sjá og svona gerist þegar við stöndum okkur vel."
Ómar Björn Stefánsson var heppinn að fá ekki rautt spjald þegar hann gaf Valgeiri Valgeirssyni olnbogaskot seint í fyrri hálfleiknum.
„Ég veit það nú ekki. Mér fannst hann toga í mig og ég einhvernvegin fer svona aftur á bak en og ég þarf að sjá þetta aftur."
„Ég talaði við Valgeir eftir á og ég held að þetta hafi ekki verið mikið"
Varstu heppinn að fá ekki rautt spjald fyrir olnbogaskotið?
„já já. Þarf maður ekki lukku í þessu, er það ekki?"