Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   fim 29. maí 2025 14:30
Brynjar Ingi Erluson
Diallo sér ekki eftir neinu - „Ber ekki virðingu fyrir þeim sem tala niðrandi hætti um móður mína“
Mynd: EPA
Senegalski vængmaðurinn Amad Diallo segist ekki sjá eftir því að hafa gefið stuðningsmönnum puttann eftir 1-0 tap Manchester United gegn úrvalsliði Suður-Asíu í gær.

Man Utd tapaði leiknum 1-0 og eftir leikinn kölluðu stuðningsmenn að honum og öðrum leikmönnum.

Hann sakar stuðningsmennina um að tala niðrandi um móður hans og svaraði hann því með því að gefa þeim puttann.

„Ég ber virðingu fyrir fólki, en ekki þeim sem tala niðrandi um móður mína. Ég hefði ekki átt að bregðast við á þennan hátt, en ég sé ekki eftir því sem ég gerði. Við skemmtum okkur frábærlega með góðu fólki í Malasíu,“ sagði Diallo á X.

Man Utd spilar seinni vináttuleik sinn gegn úrvalsliði Hong Kong og Kína á morgun.


Athugasemdir
banner