Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   fim 29. maí 2025 14:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þrándheimi
Hvað er undir fyrir Ísland í næstu tveimur leikjum?
Icelandair
EM KVK 2025
Úr síðasta leik gegn Noregi.
Úr síðasta leik gegn Noregi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland mætir Noregi hér á morgun.
Ísland mætir Noregi hér á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, ræðir hér við leikmenn sína.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, ræðir hér við leikmenn sína.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á morgun spilar Ísland við Noreg í Þjóðadeildinni og nokkrum dögum síðar er leikur gegn Frakklandi á Laugardalsvelli. Þetta eru tveir síðustu leikirnir í þessari útgáfu Þjóðadeildarinnar hjá okkar stelpum.

Þær eru með þrjú stig eftir að hafa gert þrjú jafntefli í fjórum leikjum og tapað einum leik gegn, Frakklandi úti.

Þjóðadeildin er áhugavert fyrirbæri en mikilvægi þessarar keppni er lúmskt. Keppnin var sett á laggirnar til að koma í staðinn fyrir æfingaleiki en keppnin sem er núna í gangi er önnur útgáfan fyrir kvennalandsliðin.

Tengist inn í undankeppni HM 2027
Ísland er í A-deild í annarri keppninni í röð en það hjálpaði okkur síðast. Síðasta Þjóðadeild tengdist inn í undankeppni EM en þá héldum við okkur í A-deild með því að vinna Serbíu í umspili. Liðin í A-deild voru saman í undankeppninni fyrir EM en Ísland lenti þar í öðru sæti í sínum riðli og komst beint á EM. Liðin sem eru í B-deild í Þjóðadeildinni eiga ekki möguleika á því að fara beint á EM, þau geta einungis komist í umspil.

Þannig verður það líka með undankeppni HM 2027. Með því að halda okkur í A-deild þá aukast möguleikar okkar talsvert á því að komast inn á HM sem haldið verður í Brasilíu eftir tvö ár.

Það komast fjögur lið beint á HM í gegnum Evrópu undankeppnina, en það eru liðin sem enda í efsta sæti í sínum riðli í A-deild.

Svo komst sjö lið í gegnum umspilið, en öll liðin í A-deild eru örugg í umspilið. Ísland getur því tryggt sig í umspil með því að halda sér í A-deild Þjóðadeildarinnar. Með því að vera áfram í A-deild þá mætum við líka lakari mótherja í fyrstu umferð umspilsins og eigum þá meiri möguleika á að komast áfram.

Svona er staðan í riðli Íslands í Þjóðadeildinni:
1. Frakkland, 12 stig
2. Noregur, 4 stig
3. Ísland, 3 stig
4. Sviss, 2 stig

Ef við endum í neðsta sæti, þá föllum við beint niður í B-deild en ef við endum í þriðja sæti þá förum við í umspil um að halda sæti okkar. Ef við endum í öðru sæti, þá höldum við sæti okkar í A-deild.

Það er því mikilvægt að vinna Noreg í Þrándheimi á morgun og koma sér í betri stöðu upp á það að gera að komast á HM í fyrsta sinn. Ekki væri það nú leiðinlegt.
Athugasemdir
banner