
HK heimsótti Keflavík suður með sjó þegar lokaleikir fimmtu umferðar Lengjudeildarinnar fóru fram.
Hermann Hreiðarsson gat verið stoltur af sínum mönnum í leikslok en þeir fóru með öruggan sigur af hólmi.
Lestu um leikinn: Keflavík 0 - 3 HK
„Stórkotlegt. Strákarnir og liðið í dag, þeim langaði þetta bara og við vildum svara fyrir síðasta leik sem að við spiluðum vel en náðum ekki að klára færin og fengum á okkur aulaleg mörk" sagði Hermann Hreiðarsson þjálfari HK eftir sigurinn í kvöld.
„Hvernig sem á það er litið þá nýttum við færin hér í upphafi leiks og vörðumst gríðarlega vel. Við vörðumst öllum áhlaupum og bara allir sem einn. Það langaði öllum í þennan sigur. Ég er þvílíkt stoltur af þessu liði að koma hérna og við unnum fyrir þessu í dag, heldur betur"
HK skoraði snemma tvö mörk og fóru með tveggja marka forystu inn í hálfleikinn.
„Getur verið hættuleg staða að slaka eitthvað á en þriðja markið er alltaf 'crusial' í því. Þeir eðlilega lágu á okkur og gömbluðu svolítið með sitt lið hátt og við fengum bestu færin í þeirri stöðu. Fengum þrisvar, fjórum sinnum einn á móti markmanni þannig að þegar þriðja fór inn þá var það ansi ljúft"
Sterkur sigur á góðu liði Keflavíkur á útivelli hlítur að gefa HK mikið fyrir framhaldið.
„Það gefur okkur rosalega mikið. Við vitum alveg hvað býr í liðinu sjálfir og það hefur verið smá hikst að fyrst og fremst skora. Það að fá þrjú mörk í dag var rosalega öflugt og öflug þrjú stig. Þetta voru rosalega sterk þrjú stig en þetta er bara einn leikur vissulega en þetta gefur okkur helvíti mikið, það er alveg á hreinu"
Nánar er rætt við Hermann Hreiðarsson í spilaranum hér fyrir ofan.
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Njarðvík | 5 | 3 | 2 | 0 | 14 - 4 | +10 | 11 |
2. ÍR | 5 | 3 | 2 | 0 | 8 - 2 | +6 | 11 |
3. Þór | 5 | 3 | 1 | 1 | 15 - 10 | +5 | 10 |
4. Þróttur R. | 5 | 3 | 1 | 1 | 10 - 7 | +3 | 10 |
5. Keflavík | 5 | 3 | 0 | 2 | 13 - 7 | +6 | 9 |
6. HK | 5 | 2 | 2 | 1 | 7 - 5 | +2 | 8 |
7. Grindavík | 5 | 2 | 1 | 2 | 17 - 13 | +4 | 7 |
8. Völsungur | 5 | 2 | 0 | 3 | 6 - 12 | -6 | 6 |
9. Fylkir | 5 | 1 | 2 | 2 | 6 - 8 | -2 | 5 |
10. Selfoss | 5 | 1 | 0 | 4 | 3 - 11 | -8 | 3 |
11. Fjölnir | 5 | 0 | 2 | 3 | 6 - 12 | -6 | 2 |
12. Leiknir R. | 5 | 0 | 1 | 4 | 4 - 18 | -14 | 1 |